Fotbolti.net
30.06.24 - 18:01
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu markið: Kom Englendingum í framlengingu með glæsilegri bakfallsspyrnu

Jude Bellingham

Jude Bellingham

Canon

Mynd: EPA

Englendingar voru rétt í þessu að tryggja framlengingu gegn Slóvakíu í 16-liða úrslitum Evrópumótsins, en það gerði Jude Bellingham með stórkostlegu marki.
Það stefndi allt í að stuðningsmenn enska landsliðið myndu upplifa svipaða niðurlægingu og þegar England tapaði fyrir Ísland, 2-1, á EM fyrir átta árum.

Staðan var 1-0 fyrir Slóvakíu þegar um það bil mínúta var eftir af uppbótartímanum og ekkert sem benti til þess að England væri að fara jafna leikinn.

Englendingar fengu innkast, sem var kastað inn í teiginn og þar var Marc Guehi klár í að skalla boltann aftur fyrir sig á Bellingham sem hlóð í glæsilega bakfallsspyrnu og setti boltann í hægra hornið.

Stórglæsilegt mark og annað mark Bellingham í mótinu. Staðan er 1-1 og framlenging framundan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.