
Fyrsti leikur Íslands á Evrópumótinu fer fram á miðvikudag er stelpurnar okkar mæta Finnlandi. Í riðlinum eru líka Noregur og Sviss en það eru góðir möguleikar á því að gera góða hluti á þessu móti.
Fyrir fyrsta leik á mótinu ætlum við að kynna lesendum betur fyrir öllum leikmönnum liðsins og við byrjum á markvörðunum þremur.
Fyrir fyrsta leik á mótinu ætlum við að kynna lesendum betur fyrir öllum leikmönnum liðsins og við byrjum á markvörðunum þremur.
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Aldur: 21 árs
Heimabær: Mosfellsbæ
Uppeldisfélag: Afturelding
Félag: Inter (á láni frá Bayern München)
Fyrrum félög: Afturelding/Fram, Fylkir, Örebro, Everton
Landsleikjafjöldi: 20 leikir
Aðalmarkvörður Íslands á mótinu verður líklega Cecilía Rán sem hefur komið sterk inn í liðið frá því undir lok síðasta árs. Cessa, eins og hún er kölluð, ólst að mestu leyti upp í Mosfellsbæ og fór fljótt að vekja athygli fyrir að vera efnilegur markvörður. Hún var árið 2018 valin efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar, næst efstu deildar, þegar hún var aðeins 15 ára gömul. Eftir það tímabil gekk hún í raðir Fylkis og var hún strax á sínu fyrsta tímabili þar aðalmarkvörður í Bestu deildinni.
Í ágústmánuði 2019 var hún í fyrsta sinn valin í A-landsliðið en þá var hún aðeins 16 ára gömul. Fyrsti A-landsleikurinn kom svo á Pinatar gegn Norður-Írlandi í 0-1 sigri en þar skoraði Dagný Brynjarsdóttir sigurmarkið. Hún varð þar með yngsti markvörður kvennalandsliðsins frá upphafi.
Sumarið 2020 var Cecilía valin efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar og var þá í raun bara tímaspursmál hvenær hún færi út í atvinnumennsku. Í mars 2021 kvaddi hún svo Fylki og hélt út í atvinnumennskuna. Cecilía, sem var þá 17 ára gömul, gekk í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Everton og var lánuð til Örebro í Svíþjóð.
Cecilía fékk ekki mikið að spila með Örebro og vakti það furðu margra. Hún fékk ekki atvinnuleyfi á Englandi út af Brexit og var því í kjölfarið lánuð til þýska stórveldisins Bayern München sem ákvað svo að kaupa hana. Hjá Bayern fékk hún ekki að spila mikið heldur og settu meiðsli strik í reikninginn. Fyrir tímabilið í fyrra var hún lánuð til Inter á Ítalíu og þar sýndi hún hversu frábær markvörður hún er, en hún var besti markvörðurinn á Ítalíu. Núna er búist við því að hin 21 árs gamla Cecilía muni alfarið ganga í raðir Inter.
Cecilía er á leið á sitt annað stórmót með Íslandi en hún meiddist á putta á síðasta móti og gat því ekki tekið almennilega þátt. Núna, eins og áður segir, er búist við því að hún verði aðalmarkvörður Íslands.
12. Telma Ívarsdóttir
Aldur: 26 ára
Heimabær: Neskaupstaður
Uppeldisfélag: Fjarðabyggð
Félag: Breiðablik (Á láni frá Rangers)
Fyrrum félög: Fjarðabyggð, Grindavík, Haukar, Augnablik, FH
Landsleikjafjöldi: 12 leikir
Telma er elst af markvörðunum þremur en hún er bara 26 ára gömul. Telma er markvörður sem uppalin er austur á fjörðum. Hún gekk í raðir Breiðabliks árið 2016 og þurfti hún að bíða þolinmóð eftir tækifærinu í Kópavoginum.
Hún steig sín fyrstu skref í meistaraflokki 2014 með Fjarðabyggð en var þá ekki að spila í markinu. „Ég byrjaði ekki í marki fyrr en undir lok ársins 2013 þegar Úlli (Úlfar Hinriksson) valdi mig í U17 landsliðið," sagði Telma í Heimavellinum 2021. „Ég hélt hann hefði fyrst valið mig sem sóknarmann. Ég átti ekki markmannshanska eða neitt. Svo kom í ljós að ég var að fara sem markvörður."
„Ég var að leysa af í 3. flokki sem markvörður þegar ég var í 4. flokki. Það var ekki til markvörður. Petra Lind var að þjálfa og hún plataði mig í mark á æfingum því það vantaði. Svo spilaði ég með 3. flokki fyrir sunnan, akkúrat leik sem Úlli var að horfa á. Í kjölfarið var ég valin í U17 landsliðið. Ég mætti með gleraugun mín í þokkabót á landsliðsæfingar."
Eftir að Telma fór í Breiðablik, þá var hún lánuð í Grindavík, Hauka, Augnablik og FH en tímabilið 2020 spilaði hún með FH-ingum í efstu deild. Svo fékk hún tækifærið að vera aðalmarkvörður Blika fyrir tímabilið 2021 þegar Þorsteinn Halldórsson, núverandi landsliðsþjálfari, var þjálfari Blika. Fyrir tímabilið 2021 var Telma einmitt valin í landsliðið í fyrsta sinn líka.
Hún óx inn í það hlutverk að vera aðalmarkvörður Blika, eins og hún óx inn í það hlutverk að vera aðalmarkvörður landsliðsins um tíma árið 2023. Núna er hún líklega þriðji markvörður landsliðsins en hún er sterkur karakter að hafa í hópnum.
Telma fór til Rangers í Skotlandi í fyrra eftir að hafa verið stórkostleg í Íslandsmeistaraliði Blika, en sneri aftur til Breiðabliks á láni fyrir nokkrum vikum og hefur varið mark liðsins í Bestu deildinni í sumar. Telma er að fara á sitt annað stórmót, en eins og Cecilía þá meiddist hún á síðasta móti og gat lítið tekið þátt.
13. Fanney Inga Birkisdóttir
Aldur: 20 ára
Heimabær: Reykjavík
Uppeldisfélag: Valur
Félag: Häcken
Fyrrum félög: Valur, FH
Landsleikjafjöldi: 8 leikir
Munið þið eftir því þegar Fanney Inga stimplaði sig inn með íslenska landsliðinu? Það var einhver magnaðasta frumraun sögunnar, en meira um það síðar.
Fanney, sem er fædd árið 2005, sýndi það snemma að hún væri efnilegur markvörður en hún á meira en 20 landsleiki fyrir yngri landsliðin. Hún var þá aðalmarkvörður U19 landsliðsins sem fór í lokakeppni Evrópumótsins árið 2023.
Eins og Telma, þá þurfti Fanney að bíða eftir tækifærinu sínu. Telma var með Sonný Láru Þráinsdóttur fyrir framan sig í Breiðabliki á meðan Fanney fékk að læra af Söndru Sigurðardóttur. Tvær goðsagnir í íslenskum fótbolta þar á ferðinni. Fanney fékk sín fyrstu alvöru tækifæri í meistaraflokki í Lengjudeildinni með FH sumarið 2022 en hún var á láni þar og spilaði tólf leiki.
Fyrir tímabilið 2023 var svo mikið rætt þar sem Sandra lagði hanskana á hilluna. Valur fékk bandarískan markvörð rétt fyrir mót en Fanney vann samkeppnina og spilaði 17 af 18 deildarleikjum Vals er liðið varð Íslandsmeistari. Það var umræða fyrir mót hvort pressan yrði of mikil á hana en hún var ísköld og stóð sig frábærlega. Hún var valin markvörður ársins í Bestu deildinni og fékk í fyrsta sinn kallið í landsliðið í september 2023.
Þann 4. desember kemur svo frétt á Fótbolta.net þar sem segir að Fanney muni fá fyrsta tækifærið í leik gegn Danmörku í Þjóðadeildinni. Telma, sem hafði verið aðalmarkvörður, var þá nefnilega í leikbanni. Cecilía var meidd á þeim tíma. „Hún er klár í það, ég hef engar áhyggjur af því," sagði Steini landsliðsþjálfari og var hún svo sannarlega klár í það.
Ísland vann óvæntan 0-1 sigur á Danmörku og Fanney var maður leiksins. Hún fékk sjaldgæfa 10 í einkunn hér á Fótbolta.net fyrir frammistöðu sína í leiknum. Hvað er hægt að segja? Þessi 18 ára gamli markvörður kom inn og það var eins hún væri að spila leik númer 200," sagði undirritaður í einkunnagjöf sinni. Landsliðsþjálfarinn talaði um bestu frumraun sögunnar.
Fanney hélt sæti sínu sem byrjunarliðsmarkvörður mánuðina á eftir og steig varla feilspor. Hún spilaði meðal annars frábærlega í 3-0 sigri gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli í fyrra. En hún tók skrefið út í atvinnumennsku til Svíþjóðar eftir síðasta tímabil og samdi við Häcken, eitt besta liðið þar. Hún hefur spilað nokkra leiki en ekki verið fastamaður og missti hún byrjunarliðssæti sitt til Cecilíu undir lok árs í fyrra. Það var kannski hart, en svona er fótboltinn.
Fanney er svo sannarlega öflugur varamarkvörður sem veitir Cecilíu mikla samkeppni ásamt Telmu. Fanney er ein af þeim sem er á leiðinni á sitt fyrsta stórmót.
Leikir Íslands á EM 2025:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir