Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 30. júlí 2021 22:33
Victor Pálsson
Arsenal ætlar að bjóða Xhaka og Bellerin nýja samninga
Mynd: EPA
Arsenal er að undirbúa samningstilboð fyrir tvo leikmenn þá Hector Bellerin og Granit Xhaka.

The Guardian fullyrðir þessar fréttir í dag en báðir leikmenn hafa verið orðaðir við brottför í sumarglugganum.

Inter Milan ku hafa mikinn áhuga á Bellerin og þá hefur Roma sýnt svissnenska landsliðsmanninum áhuga.

Miðað við frétt Guardiola ætlar Arsenal ekki að sleppa þessum leikmönnum fyrir leiktíðina sem fer að hefjast.

Fyrsta umferð ensku deildarinnar hefst þann 14. ágúst næstkomandi og styttist því verulega.

Athugasemdir
banner
banner