Fabio Capello, fyrrum þjálfari Juventus og svo miklu fleiri liða, hefur tjáð sig um Lionel Messi og frammistöðu hans gegn Juventus í vikunni. Messi skoraði og lagði upp í 0-2 útisigri Barcelona.
„Ég sá mjög kraftmikið og ákaft lið Barca, það ofan á gæði sem við þekkjum. Ásamt Messi sem ég hef aldrei séð hlaupa jafnmikið," sagði Capello.
„Ég sá mjög kraftmikið og ákaft lið Barca, það ofan á gæði sem við þekkjum. Ásamt Messi sem ég hef aldrei séð hlaupa jafnmikið," sagði Capello.
Capello horfði svo í frammistöðu Juventus: „Juventus kom boltanum ekki nægilega oft á Frederico Chiesa þó hann hafi verið mikið opinn. Alltaf var reynt að koma boltanum á Paulo Dybala. Juventus vissi ekki hvernig ætti að opna leikinn sem gaf Barca tækifæri til að ná boltanum fljótt aftur eftir að boltinn tapaðist."
Barcelona er með fullt hús stiga í riðlinum og Juventus er með þrjú stig. Juventus er með þrjú stig og lék liðið án Cristiano Ronaldo í leiknum.
Athugasemdir