Fotbolti.net
30.10.20 - 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kasakstan: Astana að dragast verulega aftur úr

Rúnar Már

Rúnar Már

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag var uppgjör toppliðanna tveggja í Kasakstan. Meistararnir síðustu fjögur ár, Astana, tóku á móti toppliðinu Kairat Almaty.

Almaty var með ellefu stiga forskot eftir fimmtán leiki. Gestirnir unnu 0-1 sigur í dag og eru með fjórtán stiga forskot en Astana á einn leik til góða.
Astana hefur eins og fyrr segir unnið titilinn síðustu fjögur ár og hefur Kairat alltaf verið í öðru sæti. Kairat vann deildarkeppnina siðast árið 2015.

Rúnar Már Sigurjónsson kom við sögu í dag í sínum fyrsta leik eftir landsleikinn gegn Belgíu fyrr í þessum mánuði. Rúnar lék síðasta korterið í leiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.