fös 30. október 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Maradona sextugur í dag
Mynd: Getty Images
Argentínska goðsögnin Diego Maradona á afmæli í dag en hann fagnar því að vera orðinn sextugur.

Maradona er talinn vera einn besti leikmaður sögunnar en hann varð heimsmeistari með Argentínu árið 1986 auk þess að vinna fjölda titla með félagsliðum.

Maradona komst einnig oft í fréttirnar fyrir líferni sitt utan vallar.

Eftir að skórnir fór á hilluna hefur Maradona reynt fyrir sér sem þjálfari. Hann þjálfaði landslið Argentínu á HM 2010 og er í dag þjálfari Gimnasia de La Plata í heimalandinu.

Hér að neðan má sjá nokkrar Twitter færslur í tilefni dagsins.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner