Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 30. desember 2020 11:51
Elvar Geir Magnússon
Mourinho sendi Reguilon mat um jólin
Sergio Reguilon fékk mat frá Mourinho.
Sergio Reguilon fékk mat frá Mourinho.
Mynd: Getty Images
Samband Jose Mourinho við bakvörðinn Sergio Reguilon er greinilega ansi gott. Reguilon kom til Tottenham frá Real Madrid fyrir tímabilið.

Fjölskylda hans er á Spáni og Reguilon var einn um jólin.

„Ég var mættur á æfingasvæðið á jóladag klukkan 15 og það er kassi á mínum stað í klefanum. Ég opnaði kassann og þar var svínakjöt sem var þegar búið að elda," segir Reguilon.

Mourinho vissi að þessi 24 ára leikmaður væri einn um jólin og ákvað að færa honum mat.

„Hann sagði við mig að ég þyrfti ekki að elda heldur gæti ég bara passað uppá að borða vel. Hann hefur augu með manni innan sem utan vallar."

Samband Reguilon við Zinedine Zidane, stjóra Real Madrid, var á öðrum nótum en þessi 24 ára leikmaður segir að Zidane hafi ekkert talað við sig þegar hann yfirgaf félagið og fór til Tottenham.

„Við tölumst ekki við. Það hvorki særði mig né kom mér á óvart að hann hafi ekkert talað við mig þegar ég fór," segir Reguilon.
Athugasemdir
banner
banner
banner