Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fös 31. janúar 2020 20:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Holland: Elías Már byrjaði í mjög, mjög svekkjandi jafntefli
Mynd: Getty Images
Elías Már Ómarsson var í byrjunarliði Excelsior í svekkjandi jafntefli á heimavelli í hollensku B-deildinni í kvöld.

Excelsior mætti Breda og leiddi 1-0 hálfleik. Eina mark fyrri hálfleiksins skoraði Rai Vloet fyrir Excelsior eftir hálftíma leik.

Excelsior komst í 2-0 með marki úr vítaspyrnu. Staðan þægilæg fyrir Excelsior, en þeir náðu ekki að landa sigrinum.

Gestirnir í Breda minnkuðu muninn á 87. mínútu og skoruðu síðan jöfnunarmark á 94. mínútu. Gríðarlega svekkjandi fyrir Elías og hans liðsfélaga. Elías var tekinn af velli á 84. mínútu, stuttu fyrir fyrra mark Excelsior.

Excelsior er sem stendur í sjöunda sæti B-deildarinnar, en það er umspilssæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner