Naouirou Ahamada hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Crystal Palace en hann kemur til liðsins frá Stuttgart.
Ahamada er tvítugur franskur miðjumaður en hann hefur verið í lykilhlutverki í liði Stuttgart á þessari leiktíð, byrjað í sautján af átján leikjum liðsins, skorað tvö mörk og lagt upp tvö.
„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað. Þetta er frábært félag og ég er mjög spenntur að byrja. Ég vil sýna mig og hjálpa liðinu með gæðunum mínum," sagði Ahamada við undirskriftina.
Það má búast við því að Albert Sami Lokonga gangi til liðs við Palace frá Arsenal fyrir gluggalok.
Naouirou Ahamada: ?#CPFC
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) January 31, 2023
Athugasemdir