Byrjunarlið Newcastle og Southampton sem mætast í síðari leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins eru komin í hús.
Newcastle er með 1-0 forystu frá fyrri leiknum á útivelli en það var Joelinton sem skoraði markið. Eddie Howe stjóri Newcastle treystir á sömu leikmennina og í fyrri leiknum og stillir upp sama byrjunarliði.
Það eru hins vegar breytingar á byrjunarliði Southampton.
Duje Caleta-Car er í banni eftir að hafa verið rekinn út af í fyrri leiknum. James Bree kemur inn í liðið eftir komuna frá Luton og þá koma einnig Jan Bednarek, Adam Armstrong og Che Adams inn.
Það lítur út fyrir að Nathan Jones stjóri Southampton sé að stilla upp í kerfið 5-3-2.
Newcastle: Pope, Trippier, Burn, Schar, Botman, Guimaraes, Willock, Longstaff, Joelinton, Almiron, Wilson
Southampton: Bazunu, Bree, Walker-Peters, Lyanco, Salisu, Bednarek, Alcaraz, Diallo, Ward-Prowse, Armstrong, Adams