Fotbolti.net
31.01.23 - 21:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Felipe til liðs við Nottingham Forest (Staðfest)

Felipe til liðs við Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Felipe hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við Nottingham Forest en hann gengur til liðs við félagsins frá Atletico Madrid.

Þessi 33 ára gamli varnarmaður gekk til liðs við Atletico Madrid frá Porto árið 2019 en hann lék 113 leiki með spænska liðinu.

„Það hefur verið draumur að spila í úrvalsdeildinni og ég er mjög spentur fyrir því að vera hluti af þessu æðislega félagi. Þetta félag vill augljóslega vaxa. Það er stór áskorun fyrir mig," sagði Felipe við undirskriftina.

Forest er nýliði í ensku úrvalsdeildinni en félagið hefur verið ansi virkt á félagsskiptamarkaðnum síðan liðið komst upp.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.