Fotbolti.net
31.01.23 - 18:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

KA fær tvo leikmenn frá Viking (Staðfest)

Ingimar Torbjörnsson Stöle

Ingimar Torbjörnsson Stöle

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

KA hefur fengið til sín tvo leikmenn frá norska liðinu Viking en það eru þeir Kristoffer Forgaard Paulsen og Ingimar Torbjörnsson Stöle

Ingimar er 19 ára gamall íslenskur kantmaður en hann á tvo leiki fyrir hönd U19 ára landsliðs Íslands.

Hann gekk til liðs við Viking árið 2020 frá Fjölni þar sem hann hafði verið í yngri flokkum félagsins. Hann skrifar undir þriggja ára samning við KA.

Kristoffer er 19 ára norskur varnarmaður en hann fagnar afmæli sínu í dag. Hann gerir lánssamning út komandi tímabils.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.