Fotbolti.net
31.01.23 - 20:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Óttar Magnús í Serie C á láni (Staðfest)

Óttar Magnús í Serie C á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Venezia

Óttar Magnús Karlsson er genginn til liðs við Virtus Francavilla Calcio á láni frá Venezia en Virtus leikur í Serie C, þriðju efstu deild á Ítalíu.

Óttar var á láni hjá bandaríska liðinu Oakland Roots í fyrra þar sem hann skoraði nítján mörk í þrjátíu leikjum og lagði upp tvö mörk. Hann var valinn leikmaður ársins hjá félaginu.

Hann gekk til liðs við Venezia árið 2020 frá Víkingi en hann hefur ekki verið í hóp hjá liðinu síðan hann kom úr láninu frá Bandaríkjunum.

Virtus er í 10. sæti C-riðils í Serie C en liðin í 2.-10. sæti fara í umspil um sæti í Serie B.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.