Fotbolti.net
31.01.23 - 19:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sasa Lukic til Fulham (Staðfest) - Kemur Cedric líka?

Sasa Lukic.

Sasa Lukic.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham, sem hefur verið að gera gott mót í ensku úrvalsdeildinni, er að vinna hörðum höndum að því að styrkja sig á þessum gluggadegi.
Félagið var að landa serbneska landsliðsmanninum Sasa Lukic frá Torino á Ítalíu. Er kaupverðið um 10 milljónir evra fyrir þennan 26 ára gamla miðjumanninn.

Fulham er ekki hætt á markaðnum en félagið vonast til þess að landa bakverðinum Cedric Soares frá Arsenal áður en glugginn lokar síðar í kvöld.

The Athletic greinir frá því að búist sé við því að Fulham fái Cedric, en til þess þarf félagið þá að kaupa leikmann sem er nú þegar hjá Fulham á láni. Það er gert ráð fyrir því að Fulham muni þá kaupa miðvörðinn Shane Duffy frá Brighton, en hann hefur verið á láni hjá félaginu.

Fulham er sem stendur í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.