Portúgalska stórveldið Sporting er búið að festa kaup á Ousmane Diomande, 19 ára miðverði Midtjylland í Danmörku.
Diomande hefur vakið gríðarlega mikla athygli á sér í portúgölsku B-deildinni þar sem hann er á láni hjá C.D. Mafra.
Sporting borgar 7,5 milljónir evra fyrir Diomande en sú upphæð getur farið upp í 12 milljónir með árangurstengdum aukagreiðslum. Þá heldur Midtjylland 20% af söluréttinum sem getur komið sér vel ef Diomande verður seldur frá Sporting fyrir háa upphæð.
Til gamans má geta að Diomande lék aldrei keppnisleik fyrir Midtjylland en hann var í liðinu sem gerði 3-3 jafntefli við Breiðablik á Atlantic Cup æfingamótinu í febrúar í fyrra.
Esta é a tua nova casa, Ousmane Diomande ???? #EuSouSporting pic.twitter.com/g3NHjvsY9J
— Sporting Clube de Portugal (@Sporting_CP) January 31, 2023
Athugasemdir