Thorgan Hazard er genginn til liðs við hollenska liðið PSV á láni frá Dortmund í Þýskalandi.
Eldri bróðir hans er Eden Hazard, leikmaður Real Madrid.Hazard gekk til liðs við Dortmund árið 2019 og hefur leikið 122 leiki og skorað 18 mörk.
Þessi 29 ára gamli Belgi mætir nú til Hollands og aðstoðar PSV í titilbaráttunni. Liðið er í 3. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Feyenoord.
PSV fær Feyenoord í heimsókn um næstu helgi og má búast við því að Hazard spili þá sinn fyrsta leik.
Ladies and gentlemen, he’s here and he’s ???? and ??#AnnounceThorgan pic.twitter.com/X021j7JsJ6
— PSV (@PSV) January 31, 2023
Athugasemdir