Fotbolti.net
31.01.24 - 10:06
Elvar Geir Magnússon

Ari og Davíð verða samherjar í dönsku B-deildinni

Davíð í leik með Blikum.

Davíð í leik með Blikum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Varnarmennirnir Ari Leifsson og Davíð Ingvarsson eru á leið í danska B-deildarliðið Kolding en þeir fara báðir til félagsins á frjálsri sölu. Frá þessu greinir Dr. Football á Twitter og segir að læknisskoðun sé fyrirhuguð í dag.

Kolding situr í sjötta sæti dönsku B-deildarinnar en meðal leikmanna liðsins er Thomas Mikkelsen fyrrum sóknarmaður Breiðabliks.
Ari er 25 ára miðvörður, uppalinn Fylkismaður en hann hefur yfirgefið Strömsgodset í Noregi eftir að samningur hans rann út. Þessi hávaxni varnarmaður á fjóra landsleiki fyrir Ísland.

Davíð er 24 ára vinstri bakvörður en samningur hans við Breiðablik rann út eftir síðasta tímabil. Hann var á leið til Ceske Budojevice en þau skipti runnu út í sandinn vegna þjálfaraskipta hjá tékkneska félaginu.

Ari Leifsson.

Ari Leifsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.