Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 31. mars 2020 10:08
Elvar Geir Magnússon
Bild: Bellingham á bara eftir að skrifa undir hjá Dortmund
Jude Bellingham.
Jude Bellingham.
Mynd: Getty Images
Jude Bellingham er aðeins undirskriftinni frá því að ganga í raðir Borussia Dortmund. Það segir þýska blaðið Bild.

Þessi sextán ára leikmaður Birmingham mun hafna Manchester United og Chelsea samkvæmt blaðinu.

Sagt er að hann væri líklega orðinn leikmaður Dortmund ef kórónaveirufaraldurinn hefði ekki tafið ferlið.

Bellingham er hrifinn af Dortmund og telur að hann eigi möguleika á meiri spiltíma þar en hjá United eða Chelsea.

Hann heimsótti æfingasvæði United ásamt fjölskyldu sinni í vetur en ef marka má Bild þá heillar þýska félagið meira.

Leikmaðurinn má ekki skrifa undir atvinnumannasamning fyrr en hann verður 17 ára í júní.

Sjá einnig:
Hver er þessi sextán ára Englendingur sem Dortmund vill fá
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner