Víðir Garði er búinn að krækja sér í öflugan liðsstyrk í formi Björns Arons Björnssonar sem er uppalinn hjá Keflavík og með tvo leiki að baki í Lengjudeildinni.
Björn Aron er fæddur 2001 og ólst upp hjá Víði áður en hann skipti til Keflavíkur. Hann er kröftugur bakvörður og kantmaður sem á leiki að baki fyrir Víði í 3. deild og Reyni Sandgerði í 2. deild.
Þegar hann var hjá Víði sumarið 2021 var Björn kosinn besti leikmaður tímabilsins af stuðningsmönnum félagsins.
Hann mun spila með Víði í 3. deildinni í sumar eftir að félagið endaði í fjórða sæti í fyrra, með 35 stig úr 22 leikjum.
Björn er vel kunnugur staðháttum og kemur af mikilli Víðisætt, þar sem faðir hans Björn Vilhelmsson lék með gullaldarliði Víðis á sínum tíma sem leikmaður.
Athugasemdir