Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 31. mars 2023 10:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emelía Óskars komin heim og fer í Selfoss (Staðfest)
Emelía Óskarsdóttir.
Emelía Óskarsdóttir.
Mynd: Kristianstad
Emelía Óskarsdóttir, ein efnilegasta fótboltakona landsins, er mætt heim og mun spila með Selfossi í sumar.

Emelía er á mála hjá Kristianstad í Svíþjóð en hún mun leika með Selfossi í sumar á lánssamningi.

Emilía er afar efnileg fótboltakona og er partur af U19 ára landsliði Íslands. Emilía er nýorðin sautján ára gömul en þrátt fyrir ungan aldur kom hún við sögu í 15 deildarleikjum Kristianstad á síðasta tímabili.

„Við erum ákaflega spennt fyrir því að fá Emelíu til liðs við okkur. Það er mikill heiður fyrir okkur á Selfossi að ein okkar efnilegasta knattspyrnukona sjái sér hag í því að koma á Selfoss til að halda áfram að þroska leik sinn og geta svo haldið áfram sínum atvinnumannadraumi. Það er gríðarlega spennandi fyrir okkur sem félag og mig sem þjálfara að fá að taka þátt í þessari vegferð hennar," segir Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss.

Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Selfoss en afar fróðlegt verður að fylgjast með Emelíu í Bestu deildinni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner