Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 31. mars 2023 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Leikmenn vanir fyrirsögnum" - Howe bjartsýnn með Pope
Howe er nokkuð brattur fyrir leikinn gegn Man Utd.
Howe er nokkuð brattur fyrir leikinn gegn Man Utd.
Mynd: EPA
Man Utd vann 2-0 fyrir rúmlega mánuði síðan.
Man Utd vann 2-0 fyrir rúmlega mánuði síðan.
Mynd: Getty Images
Newcastle tekur á móti Manchester United á sunnudag, úrvalsdeildin heldur áfram um helgina eftir landsleikjahlé.

Anthony Gordon er tæpur fyrir leikinn en Eddie Howe, stjóri Newcastle, er bjartsýnn að Nick Pope geti spilað. „Hann æfði með okkur í Dúbaí í vikunni," sagði Howe á fréttamannafundi í morgun.

Newcastle er í Meistaradeildarbaráttu og því risa mánuður framundan hjá félaginu. „Úrslitin munu skilgreina hversu vel við vinnum okkar vinnu. Síðustu tvö úrslit koma okkur í sterka stöðu og hækkuðu sjálfstraustið í hópnum. Það er stór vika framundan en fyrst er Manchester United og þar er einbeitingin. Við þurfum að læra af tapinu í úrslitaleiknum og reyna bæta okkur," sagði stjórinn.

Liðið mætti Man Utd í úrslitaleik deildabikarsins í febrúar en sá leikur tapaðist 2-0 á Wembley.

„Núna verða leikirnir stærri og stærri, þú færð ekki mörg tækifæri til að lagfæra hlutina ef illa fer."

„Okkur leið vel í aðdraganda úrslitaleiksins, vorum eins jákvæðir og við gátum verið. Við vorum í góðum takti. Við þurftum að skilja leikinn eftir í fortíðinni eins fljótt og hægt er. Ég held að ég komist aldrei alveg yfir einhvern tapleik, þeir sitja einhvers staðar inní mér en ég dvel ekki við þá því þeir heyra sögunni til og við þurfum að halda áfram."


Eignarhald Newcastle er til umræðu á breska þinginu og Howe var spurður hvort það hefði áhrif á leikmenn. „Ég held að það hafi ekki áhrif á leikmenn. Þeir eru vanir fyrirsögnum. Þetta hefur alltaf snúist um fótbolta hjá okkur, að gera allt sem við getum til að vera eins gott lið og hægt er," sagði Howe.

Leikurinn á sunnudag hefst 15:30 á íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner