Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 19:57
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Viðar Örn sjóðandi heitur - Markaregn á Akranesi
Viðar Örn skoraði tvö fyrir Selfoss
Viðar Örn skoraði tvö fyrir Selfoss
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Pablo Punyed (t.h.) skoraði fyrir Hauka
Pablo Punyed (t.h.) skoraði fyrir Hauka
Mynd: Haukar
Viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk er Selfoss vann 3-1 sigur á Víkingi Ólafsvík í 2. deild karla í dag. Haukar eru áfram á toppnum eftir 3-2 sigur á KFA.

Framherjinn hefur verið sjóðandi heitur síðan hann kom úr agabanni og var að skora þriðja leikinn í röð í deild- og bikar.

Hann skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik gegn Ólsurum í dag. Fyrra markið gerði hann á 23. mínútu og kom síðan annað markið undir lok hálfleiksins. Naim Aaras EL Hmaidi minnkaði muninn fyrir Ólsara á 69. mínútu en aðeins sjö mínútum síðar gerði Brynjar Bergsson út um leikinn.

Jón Daði Böðvarsson var ekki með Selfyssingum. Hann var ekki heldur með í Gatorade-bikar Fótbolta.net á dögunum, en Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfyssinga, segir það hafa verið af persónulegum ástæðum.

Selfoss er í 4. sæti með 8 stig eftir fimm leiki.

Þróttur Vogum gerði 1-1 jafntefli við Kormák/Hvöt. Pere Belmonte kom gestunum frá Blönduósi yfir á 7. mínútu áður en Eiður Jack Erlingsson jafnaði áður en hálfleikurinn var úti.

Vogamenn eru í 7. sæti með 7 stig, en Kormákur/Hvöt í 5. sæti með 7 stig.

Kári slátraði Dalvík/Reyni, 6-0, í Akraneshöllinni. Máni Berg Ellertsson, Jón Þór Finnbogason, Sigurjón Logi Bergþórsson og Matthías Daði Gunnarsson áttu fyrstu fjögur mörkin, en þeir Miguel Goncalves og Auðunn Ingi Valtýsson gerðu tvö sjálfsmörk með fjögurra mínútna millibili.

Slæmt tap hjá Dalvík/Reyni sem er í 10. sæti með 4 stig en Kári í öðru sæti með 10 stig.

Haukar halda toppsætinu eftir að hafa unnið 3-2 sigur á KFA. Pablo Punyed var á meðal markaskorara hjá Haukum sem eru með 12 stig á toppnum.

Magni og Hvíti/riddarinn gerðu 1-1 jafntefli á Grenivík. Tómas Örn Arnarson bjargaði stigi fyrir Magna með marki undir lok fyrri hálfleiks. Magni er með fjögur stig í næst neðsta sæti en Hvíti riddarinn með sjö stig í 6. sæti.

Þróttur V. 1 - 1 Kormákur/Hvöt
0-1 Pere Belmonte ('7 )
1-1 Eiður Jack Erlingsson ('42 )

Kári 6 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Máni Berg Ellertsson ('23 )
2-0 Jón Þór Finnbogason ('30 )
3-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('54 )
4-0 Matthías Daði Gunnarsson ('55 )
5-0 Miguel Joao De Freitas Goncalves ('69 , Own goal)
6-0 Auðunn Ingi Valtýsson ('73 , Own goal)

Haukar 3 - 2 KFA
0-1 Marc Sirvent Espi ('19 )
1-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('42, víti )
2-1 Pablo Oshan Punyed Dubon ('50 )
3-1 Máni Mar Steinbjörnsson ('63 )
3-2 Þór Sigurjónsson ('83 )

Magni 1 - 1 Hvíti riddarinn
0-1 Sindri Sigurjónsson ('10 )
1-1 Tómas Örn Arnarson ('45 )

Selfoss 3 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Viðar Örn Kjartansson ('23 )
2-0 Viðar Örn Kjartansson ('45 )
2-1 Naim Aaras EL Hmaidi ('69 )
3-1 Brynjar Bergsson ('75 )
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 5 4 0 1 17 - 6 +11 12
2.    Kári 5 3 1 1 16 - 7 +9 10
3.    Fjölnir 4 3 0 1 12 - 6 +6 9
4.    Selfoss 5 2 2 1 10 - 9 +1 8
5.    Kormákur/Hvöt 5 2 1 2 8 - 5 +3 7
6.    Hvíti riddarinn 5 1 4 0 7 - 5 +2 7
7.    Þróttur V. 5 2 1 2 6 - 7 -1 7
8.    KFA 5 2 0 3 12 - 11 +1 6
9.    Víkingur Ó. 5 1 1 3 7 - 14 -7 4
10.    Dalvík/Reynir 5 1 1 3 5 - 12 -7 4
11.    Magni 5 1 1 3 5 - 16 -11 4
12.    KFG 4 1 0 3 5 - 12 -7 3
Slapp
banner
banner