Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 31. júlí 2022 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ungur markvörður úr MLS til Chelsea
Mynd: Chicago Fire/Twitter

Gabriel Slonina mun fljúga til London í dag og klára félagsskipti frá Chicago Fire til Chelsea.


Slonina er 18 ára markvörður en kaupverðið er talið vera 15 milljónir dollara.

Hann hefur haldið tíu sinnum hreinu í 23 leikjum á þessari leiktíð en hann lék 11 leiki á þeirri síðustu. Það eru 11 leikir eftir af tímabilinu í ár en enginn hefur haldið oftar hreinu en sautján sinnum.

Slonina á að baki sjö landsleiki fyrir yngri landslið Bandaríkjanna. Hann á ættir sínar að rekja einnig til Póllands.

Hann mun klára tímabilið í Bandaríkjunum en ganga til liðs við Chelsea í janúar.


Athugasemdir
banner
banner
banner