Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 31. júlí 2022 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
United undirbýr samningstilboð fyrir Garnacho
Garnacho (t.h.)
Garnacho (t.h.)
Mynd: Getty Images

Alejandro Garnacho er 18 ára gamall leikmaður Manchester United og þykir gríðarlega efnilegur.


Hann heillaði Erik ten Hag stjóra liðsins í leiknum gegn Rayo Vallecano.

„Hann spilaði vel, hann er bara unglingur en hann frammistaðan hans var góð," sagði Ten Hag.

Hann kom við sögu hjá aðalliðinu í tveimur leikjum í deildinni á síðustu leiktíð, þá fór hann í æfingaferð með landsliði Argentínu á síðustu leiktíð.

Fabrizio Romano greinir frá því að Manchester United sé að undirbúa nýtt samningstilboð fyrir leikmanninn.


Athugasemdir
banner
banner
banner