sun 31. júlí 2022 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Van Dijk hefur séð breytingu á Salah
Mynd: EPA

Mohamed Salah skoraði eitt mark og lagði upp annað í 3-1 sigri Liverpool á Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í gær.


Það hafa verið miklar vangaveltur um framtíð Salah hjá Liverpool undanfarna mánuði en hann hrinti því öllu af borðinu þegar hann skrifaði undir nýjan samning við félagið í byrjun sumarsins.

Virgil van Dijk varnarmaður Liverpool var til viðtals eftir leikinn í gær þar sem hann talaði um Salah.

„Hann hefur sýnt hvað hann getur síðustu þrjú árin. Hann er alltaf undir smásjá, hann hefur búið það til sjálfur, hann er svo góður," sagði Van Dijk.

„Undir lok tímabilsins, frá Apríl til loka var mikið rætt um samninginn og fleira, við erum allir mennskir og kannski hafði það áhrif á hann því miður. Nú er allt klárt, hann er að spila áhyggjulaus, hann er ánægður að vera hér og ég held að allir séu ánægðir."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner