Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 31. desember 2020 17:30
Aksentije Milisic
Evans framlengir við Leicester (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Jonny Evans, varnarmaður Leicester City, hefur framlengt samning sinn við félagið.

Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur spilað 89 leiki fyrir Leicester og nú er hann með samning til sumarsins 2023.

Evans kom til Leicester árið 2018 frá WBA en þessi reynslumikli leikmaður á yfir 300 leiki í ensku úrvalsdeildinni.

Evans hefur unnið deildina í þrígang á sínum ferli en það gerði hann með Manchester United.

„Ég er himinlifandi yfir nýjum samningi. Ég er ánægður að framtíð mín sé hér og að félagið hafi viljað halda mér áfram," sagði Evans.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner