Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 31. desember 2020 16:15
Aksentije Milisic
Kolasinac til Schalke á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Sead Kolasinac er kominn til Schalke 04 á láni frá Arsenal. Lánssamningurinn gildir út tímabilið.

Schalke staðfesti þessar fregnir áðan en Kolasinac á að baki 94 leiki fyrir Schalke. Hann samþykkti launalækkun svo skiptin gætu gengið í gegn.

Schalke hefur verið í tómu tjóni á þessari leiktíð en liðið situr í neðsta sæti í Budensligu og liðið á enn eftir að vinna leik á þessari leiktíð.

Kolasinac kom til Arsenal frá Schalke árið 2017 og nú er hann kominn heim í bili.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner