Radja Nainggolan, hefur gengið til liðs við Cagliari en hann verður þar á láni út leiktíðina. Nainggolan kemur frá Inter Milan.
Þetta er í þriðja skiptið sem Nainggolan gengur til liðs við Cagliari en hann var þar á frá 2010-2014. Hann var á láni hjá Cagliari frá Inter á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði 26 leiki og skoraði 6 mörk.
Á þessu tímabili hefur hann fengið lítið sem ekkert að spila hjá Inter undir stjórn Antonio Conte. Hann á einungis 45 mínútur undir beltinu í vetur.
„Inter gaf mér ekki tækifæri. Ég er sáttur með að vera kominn aftur til Cagliari," sagði Nainggolan.
Samningur Nainggolan við Inter rennur út sumarið 2022.
#NAINGGOLAN IS #B4CKHOME 🔴🔵
— Cagliari Calcio (@CagliariCalcio) December 31, 2020
➡️ https://t.co/8y2O7ru3ph#forzaCasteddu pic.twitter.com/LG0gGwXoBI
Athugasemdir