Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fös 13. desember 2013 11:00
Magnús Már Einarsson
Hallbera til Torres (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hallbera Guðný Gísladóttir hefur gengið til liðs við ítalska félagið ASD Torres.

Hallbera hefur gert samning út tímabilið mun því leika með Torres út maí mánuð en Morgunblaðið greinir frá þessu.

Undanfarin tvö ár hefur Hallbera leikið með Pitea í Svíþjóð en hún ákvað á dögunum að framlengja ekki samning sinn við félagið.

Nokkur félög á Norðrlöndum hafa sýnt áhuga á að fá Hallberu í sínar raðir en hún fór til Ítalíu fyrr í vikunni og gekk frá samningi við Torres.

Hallbera er 27 ára gömul en hún á 46 landsleiki að baki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner