„Þetta var gaman," sagði Jeannette Williams, markvörður FH, við Fótbolta.net í dag um markalausa jafnteflið gegn Breiðabliki í fyrrakvöld.
Jeannette er leikmaður 2. umferðar í Pepsi-deild kvenna og hún fékk gjafabréf frá Verbúð 11 og kassa af Pepsi í dag.
Jeannette fór á kostum gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks og átti margar góðar vörslur.
Jeannette er leikmaður 2. umferðar í Pepsi-deild kvenna og hún fékk gjafabréf frá Verbúð 11 og kassa af Pepsi í dag.
Jeannette fór á kostum gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks og átti margar góðar vörslur.
„Ég er að fá mikið hrós fyrir góðan leik en þetta var allt liðið. Það spiluðu allir vel. Stelpurnar áttu góðar tæklingar og voru skipulagðar."
Jeannette kom til FH fyrir þetta tímabil eftir þrjúr hjá Víkingi Ólafsvík. „Fyrsta árið var ég meidd svo ég fór aftur til Ólafsvíkur og kunni vel við mig. Ég fór því aftur og var þriðja árið. FH fór upp í Pepsi-deildina og ég tók tækifærinu að fá að spreyta mig í Pepsi-deildina," sagði Jeannette.
FH er með fjögur stig eftir tvær umferðir í Pepsi-deildinni. Hversu langt getur liðið náð í sumar?
„Þegar ég skrifaði undir hjá FH, eftir að hafa séð liðið spila í 1. deildinni, þá taldi ég að markmiðið yrði að gefa öllum liðum í Pepsi leik. Með jafntefli gegn Breiðabliki sýndum við að þegar við vinnum saman sem lið þá getum við barist fyrir sigrum gegn öllum liðum í Pepsi-deildinni."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir