„Mér fannst við koma sterkir til leiks fyrstu fimm mínúturnar, setjum á þá mark og ég hélt að þetta yrði algjör veisla og að við myndum eiga flottan leik“ sagði Ágúst Þór Gylfason eftir jafntefli sinna manna við Fylki á Floridana-vellinum í kvöld.
„Þetta snerist algjörlega við, ég veit ekki hvað gerðist í okkar leik. Það var ekkert að ganga og menn voru þungir. Við vorum heppnir að halda í við þá og algjör stuldur að ná að jafna þetta í lokin.
„Nei, við eigum þetta [stig] ekki skilið. En við tökum það þegar það býðst. Við sýndum karakter hérna í lokin, settum pressu á þá að setja mark á 93. mínútu. Þetta var okkar stig, myndi ég segja.“
Var um vanmat að ræða?
„Nei það virkaði ekki þannig. Við komum inn í leikinn af miklum krafti. Það er ekki hægt að vanmeta lið eins og Fylki, hörkulið, hvað þá á heimavelli - Enda sást það í leiknum að þeir sneru þessu sér í hag og áttu að taka öll þrjú stigin.“
Athugasemdir