Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   þri 03. apríl 2018 23:38
Magnús Már Einarsson
Sjáðu markið: Geggjað skot hjá Birki Bjarna
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason skoraði frábært mark í 3-0 sigri Aston Villa á Reading í ensku Championship deildinni í kvöld.

Birkir braut ísinn fyrir Aston Villa með frábæru skoti frá vítateigsboganum en boltinn fór upp í bláhornið framhjá varnarlausum Vito Mannone í marki Reading.

Aston Villa er í 4. sæti í Championship deildinni með 73 stig, tveimur stigum á eftir Fulham og sjö stigum á eftir Cardiff sem er í öðru sæti.

Hér að neðan má sjá markið hjá Birki í kvöld.





Athugasemdir
banner
banner
banner
banner