Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   mið 04. apríl 2018 21:37
Magnús Már Einarsson
Guardiola um lætin: Bjóst ekki við þessu frá Liverpool
Mynd: Getty Images
„Rútan er ónýyt og ég bjóst ekki við þessu hjá sögufrægu félagi eins og Liverpool," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City, um móttökurnar sem liðið fékk þegar rúta þess mætti á Anfield fyrir leikinn í Meistaradeildinni í kvöld.

Stuðingsmenn Liverpool köstuðu flökum, blysum og fleiru í rútu City. Enginn í rútunni meiddist en rútan er óökufær eftir lætin.

„Þetta er ekki Liverpool, þetta er fólkið, en vonandi gerist þetta ekki aftur," sagði Guardiola.

„Ég bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool. Fyrir einu ári gerðist eitthvað í Dortmund. Við komum hingað til að spila fótbolta og ég skil ekki svona."

Sjá einnig:
Rúta Man City grýtt - Liverpool biðst afsökunar
Athugasemdir
banner
banner
banner