Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   fim 05. apríl 2018 09:30
Magnús Már Einarsson
Þrír frá Man Utd á óskalista Real Madrid
Powerade
Real Madrid vill fá Pogba.
Real Madrid vill fá Pogba.
Mynd: Getty Images
Faouzi Ghoulam er á óskalista Manchester United.
Faouzi Ghoulam er á óskalista Manchester United.
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin gefa ekkert eftir. Hér eru alls konar kjaftasögur fyrir sumarið.



Real Madrid hefur endurvakið áhuga sinn á David de Gea (27) markverði Manchester United. Félagið hefur einnig spurst fyrir um Paul Pogba (25) og Anthony Martial (22) leikmenn United. (Manchester Evening News)

Fabinho (24) miðjumaður Mónakó vill fara frá félaginu. Hann hefur áhuga á að ganga í raðir Manchester United. (Sun)

Real Madrid hefur ekki lengur áhuga á Mohamed Salah (25) hjá Liverpool og Harry Kane (24) hjá Tottenham. Robert Lewandowski (29) framherji Bayern Munchen er efstur á lista yfir sóknarmenn hjá Real. (Sports Illustrated)

Liverpool er að íhuga að fá nígeríska kantmanninn Moses Simon (22) frá Gent á þrettán milljónir punda en Newcastle og Brighton hafa einnig áhuga. (HLN)

Chelsea er að íhuga að fá Leonardo Jardim þjálfara Mónakó til að taka við af Antonio Conte í sumar. (Yahoo)

Manchester United ætlar að bjóða 26 milljónir punda í Faouzi Ghoulam (27) bakvörð Napoli. Hann á að taka stöðu Luke Shaw sem er væntanlega á förum í sumar. (Daily Mail)

Andreas Pereira (22), miðjumaður Manchester United, vill ræða við Jose Mourinho áður en hann ákveður framtíð sína hjá félaginu. Pereira er á láni hjá Valencia í dag. (ESPN)

Leikmenn Tottenham voru í áfalli þegar þeir heyrðu að formaðurinn Daniel Levy fái meira en sex milljónir punda í árslaun. (Times)

Southampton ætlar að reyna að fá Paco Alcacer (24) framherja Barcelona í sínar raðir í sumar ef félagið nær að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni. (Mirror)

Fulham reiknar með að fá yfir 20 milljóna punda tilboð í miðjumanninn Tom Cairney (27) í sumar. Leicester vill fá Cairney. (Sun)

Everton og Bournemouth hafa áhuga á egypska kantmanninum Mahmoud Hassan (23). Hassan er með gælunafnið Trezeguet en hann er í láni hjá Kasimpasa í Tyrklandi frá Anderlecht. (Sun)

Everton er að nálgast kaup á Oguzhan Ozyakup (25) miðjumanni Besiktas. Líklegt er að gengið verði frá kaupunum á næstu tveimur vikum. (Aksam)

West Ham vill fá Marcus Bettinelli (25) markvörð Fulham í sínar raðir. (Sun)

Watford vill stækka heimavöll sinn Vicarage Road þannig að völlurinn taki 30 þúsund manns en ekki 21,577 líkt og núna. (Watford Observer)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner