Færeyski varnarmaðurinn Gunnar Vatnhamar skoraði fyrsta markið í Bestu deildinni þetta tímabilið er hann kom Víkingi í 1-0 gegn Stjörnunni á Víkingsvellinum í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 Stjarnan
Gunnar skoraði markið undir lok fyrri hálfleiks með laglegu skoti í samskeytin eftir fyrirgjöf Helga Guðjónssonar.
Þetta var það fyrsta í Bestu deildinni þetta tímabilið en Víkingur er enn að leiða með einu marki þegar tæpur hálftími er eftir af leiknum.
Íslands- og bikarmeistararnir virðast ætla að taka fyrsta sigur tímabilsins í kvöld en liðið hefur skapað mörg ágætis færi, þar sem Valdimar Þór Ingimundarson skallaði meðal annars í stöng.
Athugasemdir