Skallagrímur 1 - 3 Ægir
1-0 Ólafur Bjarki Stefánsson ('10 )
1-1 Anton Breki Viktorsson ('20 )
1-2 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('41 )
1-3 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('78 )
Rautt spjald: Atli Rafn Guðbjartsson , Ægir ('85)
1-0 Ólafur Bjarki Stefánsson ('10 )
1-1 Anton Breki Viktorsson ('20 )
1-2 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('41 )
1-3 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('78 )
Rautt spjald: Atli Rafn Guðbjartsson , Ægir ('85)
Ægir tryggði sig áfram í 2. umferð Mjólkurbikarsins í kvöld með 3-1 sigri á Skallagrími í Borgarnesi.
Ólafur Bjarki Stefánsson opnaði markareikninginn á tímabilinu er hann kom heimamönnum í 1-0 á 10. mínútu en sú forysta varði aðeins í tíu mínútur.
Anton Breki Viktorsson jafnaði metin og þá kom Brynjólfur Þór Eyþórsson gestunum í 2-1 áður en hálfleikurinn var úti.
Sigurður Hrannar Þorsteinsson skoraði þriðja mark Ægis tólf mínútum fyrir leikslok. Ægir spilaði manni færri frá 85. mínútu eftir að Atli Rafn Guðbjartsson fékk að líta rauða spjaldið.
Ægir hélt út og mætir því Haukum í 2. umferðinni en Haukar eru fullir sjálfstrausts eftir að hafa slátrað Afríku, 20-0, í gær.
Athugasemdir