Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   mið 07. febrúar 2018 13:38
Elvar Geir Magnússon
Lögmenn Dele Alli hafa nóg að gera eftir að kynlífsmyndband lak út
Dele Alli er mikið í umræðunni.
Dele Alli er mikið í umræðunni.
Mynd: Getty Images
Á sunnudagskvöld lak út á netið tíu sekúndna kynlífsmyndband þar sem Dele Alli, leikmaður Tottenham, sést nakinn við kynlífsathafnir ásamt ónefndri stúlku.

Myndbandið hefur farið víða þrátt fyrir að menn sem starfa fyrir Dele Alli hafi gert sitt besta til að koma í veg fyrir útbreiðslu þess.

The Sun og Star birtu fréttir um myndbandið en þær fréttir voru síðan fjarlægðar eftir að lögfræðingar fótboltamannsins fóru í málið. Á Twitter hefur þó umræðan ekki stöðvast.

Ekki er vitað hvernig myndbandið lak út á netið en sögusagnir hafa verið um að brotist hafi verið inn í iCloud leikmannsins.

Á myndbandinu virðist Dele Alli algjörlega meðvitaður um að þriðji aðili sé að taka upp kynlífsathafnirnar. Spænskt blað segir að konan á myndbandinu sé Ruby Mae, fyrirsæta sem Dele Alli hefur átt í ástarsambandi við í nokkurn tíma.

Talið er að myndbandið hafi ekki verið tekið upp mjög nýlega þar sem Dele Alli hefur bætt á sig húðflúrum síðan.

Engar yfirlýsingar hafa komið frá Dele Alli og hans fólki eftir að myndbandið lak út.

👫🎄

A post shared by • Ruby Mae • (@rubymae3223) on


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner