Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   fim 08. febrúar 2018 14:32
Elvar Geir Magnússon
Mahrez tilbúinn að koma úr verkfalli ef hann fær loforð frá Leicester
Spilar ekki gegn Man City á laugardag
Mynd af Mahrez á heimavelli Leicester.
Mynd af Mahrez á heimavelli Leicester.
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez er tilbúinn að koma úr verkfalli hjá Leicester ef félagið lofar honum því að hann fái að fara í annað lið næsta sumar.

Manchester City reyndi að fá Alsíringinn í janúarglugganum en Mahrez lagði niður störf eftir að tilboði City var hafnað. Hann hefur ekki mætt til æfinga síðan og sagst vera þunglyndur yfir því að fá ekki skiptin.

Leicester mætir City um helgina en Claude Puel, stjóri Leicester, hefur staðfest að Mahrez spili ekki þann leik.

Times segir að Mahrez sé klár í að spila fyrir Leicester aftur ef félagið lofi því að hann geti farið næsta sumar.

Spurning er hvort Pep Guardiola komi með nýtt tilboð í Mahrez í sumar en hann ætlar að styrkja leikmannahóp City með sóknarleikmanni.

Leicester hefur mistekist að vinna þá tvo leiki sem liðið hefur spilað án Mahrez en leikmaðurinn hefur farið fram á sölu í síðustu tveimur gluggum. Leicester er í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner