Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   lau 10. febrúar 2018 13:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pennant í klámmyndbandi með eiginkonu sinni
Pennant einbeitir sér að öðru en fótbolta.
Pennant einbeitir sér að öðru en fótbolta.
Mynd: Getty Images
Hinn 35 ára gamli Jermaine Pennant einbeitir sér að öðru en fótbolta þessa daganna. Enskir fjölmiðlar segja frá því um helgina að hann hafi tekið þátt í klámmyndbandi með eiginkonu sinni.

Pennant, sem lék m.a. með Liverpool á ferli sínum, reyndi að fela andlit sitt en húðflúr hans komu upp um hann.

Eiginkona hans, Alice Goodwin, rukkar víst sex pund á mínútuna fyrir kynlífsathafnir í gegnum vefmyndavél. Pennant á að hafa tekið þátt í einu myndbandi ásamt henni.

„Ég vissi að þetta væri eiginkona hans, en ég bjóst ekki við því að sjá hann. Þessi gaur spilaði í ensku úrvalsdeildinni og í úrslitaleik Meistaradeildarinnar," sagði einn viðskiptavinur í samtali við Sun.

Pennant er í augnblikinu samningslaus eftir að hafa verið hjá utandeildarliðinu Billericay Town.
Athugasemdir
banner