Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   fim 12. janúar 2017 09:11
Magnús Már Einarsson
Cleverley á leið til Watford
Mynd: Getty Images
Tom Cleverley, miðjumaður Everton, er á leið í læknisskoðun hjá Watford.

Félögin hafa náð samkomulagi um lánssamning sem gildir út tímabilið.

Cleverley hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá Everton síðan hann kom til félagsins frá Manchester United sumarið 2015.

Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur einungis byrjað fjóra leiki á þessu tímabili.

Everton er að fá miðjumanninn Morgan Schneiderlin í sínar raðir frá Manchester United og því hefur Cleverley fengið leyfi til að róa á önnur mið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner