Paul Merson, sérfræðingur hjá Sky, segir að Liverpool geri besta samning í heimi ef félagið krækir í Theo Walcott fyrir Raheem Sterling.
Sterling gæti verið á förum frá Liverpool og orðrómur er um að hann fari til Arsenal.
Walcott gæti farið til Liverpool sem hluti af kaupverðinu.
,,Ef Theo Walcott fer til Liverpool, Raheem Sterling fer til Arsenal og Liverpool fær pening á milli þá held ég að Liverpool sé með besta samning sögunnar," sagði Merson.

,,Ef hann (Sterling) fer til Arsenal, á hann eftir að spila? Ég held að hann sé ekki Arsenal leikmaður. Hann er ekki nógu fljótur að horfa upp og ekki nógu fljótur að senda boltann."
Athugasemdir