Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
Gunnar Heiðar: Það þurfti mikla þolinmæði
Dragan: Eigum ekki að fá á okkur svona mark en svona er fótboltinn
Jóhann Kristinn: Nú má Sandra fara að vara sig
Selma: Ætluðum að mæta tvíefldar til leiks
Sandra María: Gaman að fá ný nöfn í þetta
Egill Orri skoðar skóla í Danmörku - „Ætla gera mitt besta hjá Þór þangað til"
Ætlaði allt um koll að keyra á Akureyri - „Stuðningsmennirnir alveg geggjaðir"
„Búinn að breytast í Usain Bolt ef hann er að fara ná boltanum"
Arna Eiríks: Mig langaði eiginlega bara að fara gráta
Stórt kvöld fyrir Berglindi - „Svo vonandi hringir Steini"
Pétur Péturs: Þannig með góða leikmenn þú tekur oft fastar á þeim
Agla María: Ótrúlega góð kaup hjá Breiðabliki
Óli Kristjáns: Eins ógeðslegt og það verður
Kristján svekktur: Ætla ekki að trúa því að þetta komi fyrir aftur
Kristrún Ýr: Skemmti mér vel að spila þennan leik
Guðni Eiríks: Sól og blíða og gleði í FH hjörtum í dag
Heiða eftir stórsigur gegn gamla liðinu: Var ógeðslega erfið ákvörðun
Guðni: Hundfúl að vera á heimavelli og vinna ekki fyrsta leik
Dagur í lífi Eyþórs Wöhler - Sjósund með GEmil og goðsögn heimsótt
Alls ekki byrjunin sem ÍR ætlaði sér - „Eigum að vera sterkari en þetta"
banner
   fim 16. mars 2017 23:13
Elvar Geir Magnússon
Gústi Gylfa: Vonandi búnir að taka dýfuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir tap í fyrstu þremur leikjum Lengjubikarsins náði Fjölnir að vinna 5-2 sigur gegn Leikni R. í Lengjubikarnum í kvöld.

„Eftir fjóra tapleiki í röð er gott að fá loksins sigur. Við ætluðum að spila einfaldan fótbolta og það tókst á köflum, mér fannst við bestir þegar við gerðum það," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis.

„Ég vona að við séum búnir að taka dýfuna, vonandi er þetta upp á við núna og við toppum á réttum tíma þegar Íslandsmótið byrjar."

Þórir Guðjónsson skoraði þrennu fyrir Fjölnisliðið í kvöld.

„Hann með þrennu og Marcus (Solberg) með tvennu, svo senterarnir skoruðu þrennu í dag. Það er gott fyrir okkur. Þeir verða bara betri þegar nær dregur."

Þórður Ingason, aðalmarkvörður Fjölnis, hefur ekkert spilað á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla.

„Við erum farnir að sjá hann á æfingum og hann er farinn að komast í takkaskó. Hann fór í aðgerð á il í febrúar. Hann getur æft eitthvað með okkur í æfingaferðinni í næstu viku. Þetta lítur allt vel út," sagði Ágúst.

Tveir ungir Fjölnismenn eru úti hjá Tromsö á reynslu og nýlega samdi Viðar Ari Jónsson við Brann í Noregi. Fjölnismenn hika ekki við að hleypa sínum mönnum út.

„Það er draumur allra leikmanna að komast út og við viljum ekki stöðva það. Þessir strákar koma vonandi til baka þegar þeir enda ferilinn," sagði Ágúst en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner