Framundan er mikilvægur fallbaráttuslagur milli nýkrýndra bikarmeistara ÍBV og Víkings frá Ólafsvík. Leikurinn verður klukkan 18:00 á Hásteinsvelli.
Fréttaritari Fótbolta.net í Vestmannaeyjum, Einar Kristinn Kárason, textalýsir leiknum.
Fréttaritari Fótbolta.net í Vestmannaeyjum, Einar Kristinn Kárason, textalýsir leiknum.
Um er að ræða næst síðasta leik 15. umferðar Pepsi-deildarinnar.
Eyjamenn eru í fallsæti, ellefta sætinu, með 13 stig en Ólafsvíkingar eru með þremur stigum meira í sætinu fyrir ofan.
Síðasti sigurleikur ÍBV í deildinni kom 15. júní. Kristján Guðmundsson, þjálfari Eyjamanna, gerir eina breytingu frá byrjunarliðinu í bikarúrslitaleiknum. Felix Örn Friðriksson byrjar en Matt Garner hefur leik á bekknum.
Í síðustu umferð vann Víkingur Ólafsvík 2-1 sigur gegn Grindavík. Ejub Purisevic, þjálfari Ólsara, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu. Alexis Egea er ekki með Ólsurum eftir að hafa nefbrotnað í síðasta leik. Emir Dokara kemur inn í byrjunarliðið. Þá kemur Gunnlaugur Hlynur Birgisson inn í byrjunarliðið fyrir Pape Mamadou Faye.
Byrjunarlið ÍBV:
22. Derby Carrillo (m)
5. David Atkinson
6. Pablo Punyed
7. Kaj Leo í Bartalsstovu
9. Mikkel Maigaard
11. Sindri Snær Magnússon (f)
12. Jónas Þór Næs
26. Felix Örn Friðriksson
27. Brian McLean
30. Atli Arnarson
34. Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Byrjunarlið Víkings Ó.:
30. Cristian Martínez (m)
3. Nacho Heras
5. Eivinas Zagurskas
7. Tomasz Luba
8. Gabrielius Zagurskas
9. Guðmundur Steinn Hafsteinsson (f)
13. Emir Dokara
17. Kwame Quee
18. Alfreð Már Hjaltalín
23. Gunnlaugur Hlynur Birgisson
24. Kenan Turudija
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir