Sparkspekingurinn Alan Smith, fyrrum leikmaður Arsenal, var fenginn af Telegraph til að velja sameiginlegt lið úr leikmannahópum Liverpool og Manchester United.
Liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en áhugavert er að Smith velur sjö frá Liverpool í liðið.
Liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en áhugavert er að Smith velur sjö frá Liverpool í liðið.
David de Gea er valinn í markið og segir Smith að það hafi verið auðvelt val.
Í vörnina velur hann Nathanial Clyne, Eric Bailly, Chris Smalling og James Milner.
Adam Lallana, Jordan Henderson og Paul Pogba mynda miðjuna.
Liverpool einokar síðan framlínuna með Sadio Mane, Philippe Coutinho og Roberto Firmino.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19 og verður í beinni á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir