Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   lau 26. maí 2018 17:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Real ætlar að reyna að kaupa De Gea
Mynd: Getty Images
Sky Italia heldur því fram að Real Madrid ætli að leggja mikið púður í að reyna að kaupa David De Gea af Manchester United í sumar.

Mistakist félaginu að kaupa De Gea ætlar það að bjóða 70 milljónir evra í Alisson, markvörð Roma.

Real hefur lengi verið á höttunum eftir De Gea sem er talinn einn af allra bestu markvörðum heims um þessar mundir. Man Utd harðneitar að selja Spánverjann.

Alisson hefur vakið mikla athygli á tímabilinu og var Liverpool orðað við hann í janúar en verðmiðinn talinn of hár.

Hann er aðalmarkvörður brasilíska landsliðsins. Ederson, markvörður Manchester City, er varamarkvörður þar á bæ.
Athugasemdir
banner
banner
banner