Fotbolti.net
01.02.20 - 12:00
Ívan Guðjón Baldursson

Everton vill fara til Everton

Everton Cebolinha, einnig þekktur sem Everton Soares, í leik með Gremio.

Everton Cebolinha, einnig þekktur sem Everton Soares, í leik með Gremio.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Everton Cebolinha gæti verið á leið til Everton næsta sumar. Enska úrvalsdeildarfélagið sýndi honum mikinn áhuga í janúar en gat ekki gengið frá kaupunum án þess að brjóta háttvísisreglur enska boltans.
Everton staðfesti á fréttamannafundi að bæði Carlo Ancelotti og Richarlison hafi sett sig í samband í janúar. Hann virðist vera spenntur fyrir að ganga í raðir félagsins.

„Hann (Ancelotti) spurði hvernig ég hefði það og hvort ég hefði áhuga á að spila fyrir félagið. Þetta er magnaður þjálfari og frábært félag, ég get lært mikið af honum," sagði Everton.

„Richarlison er vinur minn og hafði samband við mig til að segja mér frá því hversu frábært félagið er."

Everton er 23 ára gamall og hefur skorað 3 mörk í 14 landsleikjum fyrir Brasilíu. Hann skoraði 19 mörk í 49 leikjum í brasilíska boltanum í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.