Fotbolti.net
01.02.21 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Viðtal

Anton Logi fór í aðgerð vegna langvarandi meiðsla

Markmiðið er fyrst og fremst að geta farið æfa á fullu verkjalaus og svo sjáum við bara hvað gerist eftir það

Markmiðið er fyrst og fremst að geta farið æfa á fullu verkjalaus og svo sjáum við bara hvað gerist eftir það

Canon

Mynd: Hulda Margrét

Anton Logi Lúðvíksson hefur ekki átt neitt draumaár í fótboltanum en það hefur einkennst af meiðslum. Í janúar á síðasta ári var hann lánaður til ítalska félagsins SPAL frá Breiðabliki.

Eftir það var lítið að frétta af Antoni Loga inn á vellinum þar til í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar þegar hann lék sinn fyrsta leik mótsleik með Blikum. Anton Logi, sem er sautján ára gamall, kom inn á undir lok leiks gegn Fylki. Hann skrifaði svo undir þriggja ára samning við Blika undir lok síðasta árs.
Á dögunum fór Anton Logi í aðgerð en fyrir aðgerðina hafði fréttaritari samband og var ákveðið að fara yfir stöðuna eftir aðgerð.

„Aðgerðin gekk vel, nú er bara að koma sér aftur á völlinn," sagði Anton Logi þegar fréttaritari hafði samband í gær.

Við byrjum á forsögunni, hvernig SPAL kom upp, og færum okkur svo yfir í meiðslin langþreyttu. Anton Logi á að baki sautján unglingalandsleiki en unglinglandsliðin koma aðeins við sögu.

SPAL kom inn í dæmið eftir reynsluferð til OB
Anton Logi fór á reynslu til OB í Danmörku í nóvember 2019. Var hann nálægt því að semja við danska félagið?

„Nei, ég var aldrei nálægt þvi að semja við OB. Ég fór á reynslu í viku í nóvember sem gekk fínt og þeir töluðu um að fá mig aftur á reynslu. En svo í millitíðinni kemur upp áhugi frá SPAL, sem varð til þess að OB dæmið varð ekki að neinu meira."

Sáu hann spila í Króatíu - Var alls ekki sannfærður
Hvernig vissi SPAL af Antoni Loga?

„Eftir því sem ég best veit þá hafði SPAL séð mig spila í Króatíu með U16 og menn frá félaginu fylgdust með mér eftir það. Félagið gerði lánstilboð með forskaupsrétti í janúar 2020 sem Breiðablik samþykkti."

Þurfti hann eitthvað að hugsa sig um áður en hann ákvað að fara til Ítalíu að láni?

„Ég var alls ekki sannfærður strax, að það væri réttast að stökkva á þetta, en svo þegar ég hugsaði þetta betur þá gat ég eiginlega ekki neitað þessu tækifæri og sé ekkert eftir því að hafa farið."

6-8 vikur urðu að heilu ári
Anton Logi var beðinn um að fara aðeins yfir liðið ár og meiðslasöguna. Hvað er það sem hefur verið að hrjá hann?

„Ég byrjaði að finna fyrir óþægindum í nára í leik í Hvíta-Rússlandi með U17 og hélt að þetta væru bara smávægileg nára meiðsli og spila ekkert meira á því móti. Ég fer þaðan til Ítalíu, er ekki 'fit' og er sendur í segulómun. Eftir hana segja menn við mig að ég sé með 'sports hernia' og að ég verði frá í 40-60 daga."

„Endurhæfingin gengur vel úti á Ítalíu og ég er að byrja æfa þegar faraldurinn skellur á og æfingasvæðinu er lokað. Á þessum tímapunkti er ég búinn að ná u.þ.b. fimm æfingum þar sem ég er með á fullu."

„Svo fer ég heim í lok mars og kem inn í æfingaprógram hjá Breiðabliki. Þá byrja ég að finna fyrir sömu meiðslum aftur og er eiginlega kominn aftur á byrjunarreit. SPAL þurfti að tilkynna Breiðabliki fyrir 15. júní hvort það myndi nýta sér forskaupsréttin og þarna var ég meiddur, með sömu meiðsli og í byrjun árs. Félagið gat ekki tekið þá áhættu að kaupa mig sem var mjög eðlileg akvöðun en auðvitað svekkjandi að fá ekki tækifæri til í að spila alvöru leik með SPAL."


Hvernig voru samskiptin við SPAL þegar leið að enda lánssamningsins?

„Samskiptin við SPAL voru góð og menn voru leiðir yfir því hvernig hlutirnir þróuðust hjá mér á meðan ég var leikmaður félagsins," sagði Anton og hélt áfram að segja frá sínu ári.

„Á þessum tímapunkti er lánssamningurinn búinn og ég orðinn leikmaður Breiðabliks aftur. Þá fer ég í sterasprautur sem gera það að verkum að í lok ágúst er ég orðinn góður og fer að spila aftur með 2. flokki og er í hópnum í nokkrum leikjum hjá meistaraflokki. Ég kem svo inn á í síðasta leiknum gegn Fylki."

„Ég fer að finna fyrir sömu meiðslum báðu megin í nára og neðst í kviðnum aftur í covid stoppinu í haust. Ég var á þeim tíma að reyna koma mér í gegnum þetta enda orðinn frekar langur tími sem þessi meiðsli höfðu verið að plaga mig."

„Svo þegar við vorum að byrja aftur að æfa á þessu undirbúningstímabili var ég ennþá að finna fyrir sömu meiðslum og loks á einhverri æfingunni milli jóla og áramóta fann ég að ég gat ekki verið að æfa verkjaður lengur."


Þakklátur en vissi að aðgerð væri eina lausnin
Anton Logi klárar frásögn sína hér að neðan en fréttaritari vildi aðeins forvitnast frekar um leikinn gegn Fylki. Hvernig var tilfinningin að spila fyrsta alvöru leikinn með Blikum?

„Það var náttúrulega góð tilfinning - að koma inn á fyrir liðið sem þú hefur æft með síðan þú varst polli."

Hvaða hugsanir fóru í gegnum huga Antons Loga í kringum þennan leik? Hvernig var nákvæmlega meiðslastaðan á honum, var hann 100%?

„Ég var auðvitað mjög þakklátur að fá að koma inn á í liðið mitt, Breiðablik. Á þessum tíma vissi ég að ég væri ekki 100% og leið mér alltaf þannig að þetta myndi ekki lagast nema ef ég færi í aðgerð."

Gert við báðum megin
Aftur að æfingunni milli jóla og áramóta. Hvert var næsta skref?

„Eftir viðtal við lækni var ljóst að ég þurfti á aðgerð að halda. Aðgerðin var svo í síðustu viku, þar sem gert var við sports hernia bæði hægra megin og vinstra megin. Nú vona ég að þar með sé búið að komast í veg fyrir meinið."

Getur vonandi æft verkjalaus eftir tvo mánuði
Hversu langt er í að Anton Logi geti farið að æfa og spila fótbolta aftur?

„Læknirinn vildi meina að aðgerðin hafi gengið vel og er vonast til þess að ég geti farið að æfa aftur verkjalaus innan tveggja mánaða."

Fréttaritari spurði Anton Loga hvort markmiðið væri að bæta við leikjum með Blikum á ferilskrána í sumar. Anton heldur sér algjörlega á jörðinni og horfir styttra fram í tímann.

„Markmiðið er fyrst og fremst að geta æft á fullu verkjalaus og svo sjáum við bara hvað gerist eftir það," sagði Anton Logi að lokum.
Samskiptin við SPAL voru góð og menn voru leiðir yfir því hvernig hlutirnir þróuðust hjá mér á meðan ég var leikmaður félagsins

Samskiptin við SPAL voru góð og menn voru leiðir yfir því hvernig hlutirnir þróuðust hjá mér á meðan ég var leikmaður félagsins

Canon

Mynd: SPAL

Ég byrja að finna fyrir óþægindum í náranum í leik í Hvíta-Rússlandi með U17

Ég byrja að finna fyrir óþægindum í náranum í leik í Hvíta-Rússlandi með U17

Canon

Mynd: Hulda Margrét

En svo í millitíðinni kemur áhugi frá SPAL, sem varð til þess að OB dæmið varð ekki að neinu meira.

En svo í millitíðinni kemur áhugi frá SPAL, sem varð til þess að OB dæmið varð ekki að neinu meira.

Canon

Mynd: BlikarTV/HVH

Anton Logi fór í aðgerð vegna langvarandi meiðsla
Canon

Mynd: Blikar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.