Fotbolti.net
01.02.23 - 22:15
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Barcelona með átta stiga forystu á Real Madrid

Robert Lewandowski

Robert Lewandowski

Canon

Mynd: EPA

Betis 1 - 2 Barcelona
0-1 Raphinha ('65 )
0-2 Robert Lewandowski ('80 )
1-2 Jules Kounde ('85 , sjálfsmark)
Barcelona er nú með átta stiga forystu á toppnum eftir 2-1 sigur á Real Betis í La Liga í kvöld.

Gestirnir frá Barcelona voru töluvert meira með boltann í fyrri hálfleiknum en liðin skiptust samt á færum. Rui Silva sá við Pedri sem var kominn einn í gegn og þá var mark tekið af Raphinha vegna rangstöðu.

Raphinha skoraði löglegt mark á 65. mínútu leiksins áður en Robert Lewandowski tvöfaldaði forystuna.

Franski varnarmaðurinn Jules Kounde kom boltanum síðan í eigið net fimm mínútum síðar en það kom ekki að sök og 2-1 sigur Barcelona staðreynd.

Börsungar eru nú með 50 stig á toppnum, átta stigum á undan erkifjendum sínum í Real Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.