Fotbolti.net
01.02.24 - 16:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Halmstad í viðræðum um kaup á Gísla Eyjólfs

Halmstad í viðræðum um kaup á Gísla Eyjólfs
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gísli Eyjólfsson gæti verið á leiðinni til sænska félagsins Halmstad. Það er Dr. Football sem greinir frá þessu á X. Sænska félagið er búið að bjóða í Gísla.

Gísli er 29 ára miðjumaður og algjör lykilmaður í liði Breiðabliks. Hann skoraði þrjú mörk í 15 Evrópuleikjum og sjö mörk í Bestu deildinni á liðinni leiktíð. Hann lagði upp fjögur mörk í deildinni, eitt í Evrópu og eitt í Mjólkurbikarnum.
Gísli með ákvæði í samningi sínum ef erlent félag bankar upp á
TENGT EFNI

Gísli með ákvæði í samningi sínum ef erlent félag bankar upp á

Gísli sagði frá því í vetur að hann væri með ákvæði í samningi sínum sem væri hagstætt fyrir sig ef áhugi kæmi erlendis frá.

Halmstad fylgist greinilega vel með íslensku deildinni því í síðasta mánuði fékk félagið Birni Snæ Ingason í sínar raðir frá Víkingi.

Gísli hefur spilað í Svíþjóð á sínum ferli. Hann var leikmaður Mjällby fyrri hluta tímabilsins 2019.

Fótbolti.net hafði samband Ólaf Garðarsson sem er umboðsmaður Gísla. „Félögin eru að tala saman," var það eina sem hann gat sagt að svo stöddu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.