Fotbolti.net
01.04.21 - 14:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrirliði Yeovil Town lést í gær

Fyrirliði Yeovil Town lést í gær
Canon

Mynd: Getty Images

Lee Collins, fyrirliði utandeildarliðsins Yeovil Town sem var lengi vel partur af deildakerfi EFL, lést í gær.
Collins var 32 ára gamall varnarmaður og hafði lítið spilað á leiktíðinni. Hann var á varamannabekknum í 3-1 sigri gegn Barnet núna síðasta þriðjudag en hafði ekki spilað keppnisleik síðan 6. febrúar.

„Lee lést í gær og hugsanir okkar eru með fjölskyldu hans og vinum. Við biðjum alla um að virða einkalíf fjölskyldunnar," segir í yfirlýsingu frá Yeovil Town.

Yeovil átti að spila við Altrincham á morgun en þeim leik hefur verið frestað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.